12.3.2021 | 09:37
Fyrsta Færslan
Sælir kælir
Ég hef ákveðið að byrja með blogg um líf mitt og Ásgeirs Péturs hér í Stokkhólmi. Hugmyndin er innblásin af Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur, góðvinkonu minni, sem sjálf heldur upppi ferðablogg um ævintýri hennar og vinnu í Finnlandi. Mæli með að tékka á hennar bloggi fyrir áhugasama, hún lenti í hremmingum og festist í Stokkhólmi.
ANNARS
Fjórði mánuðurinn okkar í Stokkhólmi og allir hressir enn sem komið er. Þriðja bylgjan hafin og allt á blússandi siglingu áfram veginn. Enginn með grímur, fólk sést í faðmlögum og heilsast með handabandi. Ásgeir er kominn með tvöfaldan skammt af Pfizer á meðan ég bíð bara eftir að smitast af veirunni knáu. Stokkhólmur er borg óttans á tímum Covid.
Í morgun fór ég á Fabrique, bakarí hinum megin við götuna og keypti croissant fyrir okkur. Það er uppáhaldsmorgunmaturinn minn með cappuccino og helst linsoðnu eggi. Ég hef ekki enn fundið bestu leiðina til að linsjóða egg svo ef þið eruð með solid aðferð má endilega kvitta í gestabók og deila aðferðinni. Annars er ég mikið að vinna með frosin croissant sem maður kaupir út í búð. Þau eru mjög fín líka en þetta er spari.
Bring back the blog.
Eldri færslur
Af mbl.is
Innlent
- Orð Kristrúnar auka á ósættið
- Fasteignaskattslækkun felld
- Lægð suður af landinu
- Efnt til Listasumars á Jónsmessu fyrir norðan
- Evrópa loksins vöknuð til varna
- Ferðamenn verið þægir í einhvern tíma
- Meirihlutinn klofnaði í afstöðu til Björns
- Ísland hafi burði til að stofna her
- Sundhnúkar kannski að verða bensínlausir
- Maðurinn hafi verið með alvarlega nýrnabilun
Erlent
- Gestir Versala geta nú átt samtöl við stytturnar
- Færri leiti hælis í sífellt lokaðri heimi
- Trump varpaði F-sprengjunni
- Stálu launum knattspyrnumanna
- Reiðir heimamenn vegna brúðkaups Bezos
- Blendnar tilfinningar Tehranbúa til vopnahlés
- Segjast hafa tafið kjarnorkuáætlun Írans um mörg ár
- Íran muni verja lögmæt réttindi sín
- Ellefu létust í sprengjuárásum Rússa
- Sendi Trump hálfgert ástarbréf fyrir fundinn
Athugasemdir
Manstu að Bassi sagði 7 mín fyrir hin fullkomnu linsoðnu egg ☺️
ps. þú ert geggjuð
Berglind (IP-tala skráð) 12.3.2021 kl. 09:49
Gaman að fá fréttir frá þér elsku Sigurlaug Sara. Spennandi með linsoðna eggið. Ég hef engin ráð en vona að þú fáir flottar tillögur frá öðrum lesendum. Sjálf byrja ég oftast daginn á kaffi og suðusúkkkulaði.
Bestu kveðjur,
Sólveig
Sólveig Ásta Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 12.3.2021 kl. 11:32
Já hann sagði gufusjóða, ég viðurkenni að ég bara kann ekki þá tækni!. Gaman að fá athugasemdir og svo minni ég á gestabók síðar fyrir þá sem munu heimsækja bloggið reglulega.
Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir, 12.3.2021 kl. 12:29
JAAASS. Bring the blog back!
Nanna El. (IP-tala skráð) 12.3.2021 kl. 14:12
Skemmtilegust as ever yndisstelpa ! Söknum þín massa mikið í Mjölni ❤️
Unnur Bryde (IP-tala skráð) 14.3.2021 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.