5.4.2021 | 07:20
Páskafrí
Ekkert bloggað yfir þessa allra heilugustu daga. Annar í páskum í dag. Látum það slæda.
Mig langar ekki að vera vistuð á Fosshótel. Ég sá að það var lax með osti í matinn. Ég stefni ekki á heimferð á næstu dögum. Ég skil þetta samt. Samgleðst ef öðrum takmörkunum verður létt heima. 50 þúsund fyrir prísund er bara ansi blóðugt. Ég held samt. Ef ég væri ekki stödd í Svíþjóð. Ef ég byggi heima og ekki á leið erlendis. Þá þætti mér þetta snilld. En ég er svo sjálfselsk. Allt sem gerir mitt líf erfiðara gagnrýni ég.
Hér eru allir í páskastuði. Draumeggið bar sigur úr býtum. Betra en Nói. Meira nammi og súkkulaðið er betra.
Sól í gær. Snjór í dag. Smá "peace of home" eins og maður segir.
Hvort myndir þú frekar vilja
A. Sæta sóttkví á Fosshótel
B. Taka á þig þjáningar Jesú Krists
Endilega skrifið í athugasemdir. Ég minni einnig á gestabókina.
Gleðilega páska
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.