17.3.2021 | 09:17
9 og 1/2 tími
Svaf í níu og hálfan tíma í nótt. Vaknaði samt kl.06.20 með Ásgeiri Pétri. Ég gerði cappuccino fyrir okkur. Þetta geri ég á hverjum virkum degi. Gefið mér gullmedalíu. Að sofna snemma og vakna snemma er einhvers konar rjómi af lífinu sem ég er að uppgötva hér í "rútínu óða Svíaríki".
Nú eru flestar vinkonur mínar með barn í maga eða á brjósti. Þær eru margar hverjar að glíma við svefnvandamál eða nýtt svefnmynstur. Þetta hvetur mig til að sofa eins mikið og ég get og njóta þess. Við keyptum nýjar sængur. Sængurnar heita Ebba. Ég hef því myndað hugrenningartengsl milli rúmsins míns og Ebbu Katrínar Finnsdóttur vinkonu minnar. Smá skrítið.
Ég sendi shout out á mæður og foreldra sem eru að upplifa skertan svefn. Ég held það sé ógeðslega erfitt. Þið komist í gegnum þetta... En líka allir aðrir sem fá lítin svefn útaf veikindum, vinnu, skóla, álagi eða stressi. Það fer neflinlega stundum í taugarnar á mér þegar einhver segist vera þreyttur og er klukkaður með "þú þekkir ekki þreytu fyrr en þú eignast barn". Án þess að gera lítið úr foreldraþreytu að þá er bara hellingur af fólki að glíma við svefnvandamál, andlegt stress eða líkamleg meiðsl og getur ekki sofið. Bara putting it out there. Við þurfum ekkert að bera svefnleysi okkar saman. Það er alltaf jafn glatað.
Góða við atvinnuleysi er að maður getur sofið helling. Alltaf að líta á björtu hliðarnar krakkar. Jájá. svefn er að trenda
Hvort myndiru frekar vilja (inspired by Ingunn Sigríður Árnadóttir)
A. Borða teskeið af hundaælu á hverjum degi í þrjú ár
B. Búa við óbreyttan Covid heim í þrjú ár í viðbót (Ísland er ekki grænt land í þessum leik)
XOXO
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)