Leita í fréttum mbl.is

Páskafrí

Ekkert bloggað yfir þessa allra heilugustu daga. Annar í páskum í dag. Látum það slæda.

Mig langar ekki að vera vistuð á Fosshótel. Ég sá að það var lax með osti í matinn. Ég stefni ekki á heimferð á næstu dögum. Ég skil þetta samt. Samgleðst ef öðrum takmörkunum verður létt heima. 50 þúsund fyrir prísund er bara ansi blóðugt. Ég held samt. Ef ég væri ekki stödd í Svíþjóð. Ef ég byggi heima og ekki á leið erlendis. Þá þætti mér þetta snilld. En ég er svo sjálfselsk. Allt sem gerir mitt líf erfiðara gagnrýni ég. 

Hér eru allir í páskastuði. Draumeggið bar sigur úr býtum. Betra en Nói. Meira nammi og súkkulaðið er betra. 

Sól í gær. Snjór í dag. Smá "peace of home" eins og maður segir.

 

Hvort myndir þú frekar vilja

A. Sæta sóttkví á Fosshótel

B. Taka á þig þjáningar Jesú Krists

Endilega skrifið í athugasemdir. Ég minni einnig á gestabókina.

Gleðilega páska


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir
Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir
Sara í Stokkhólmi. Ævintýrið, hamfarirnar, og það sem er ekkert áhugavert þar á milli.
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband